Tóm: víðáttumikið tómarúm, rými þar sem ekkert er – oft fundið sem djúp fjarvera innra með manni.
Þetta málverk varð til á meðan ég var að vinna úr mjög erfiðu sambandi. Það hafði tæmt mig algjörlega og skilið eftir tómleika. Þegar ég lít til baka er ég þakklát, því það kenndi mér svo margt um sjálfa mig. En þetta málverk er áminning um að ég má aldrei aftur týna sjálfri mér, við það að reyna að bjarga einhverjum öðrum.
Acrylic on canvas
45x90cm
